Liðsfélagi Orra og enskur landsliðsmaður á blaði Arsenal

Jon Martín

Mynd: EPA

Jon Martín

Mynd: EPA
Tveir miðverðir eru á blaði ensku meistaranna í Arsenal varðandi möguleg kaup á varnarmanni í sumarglugganum.
Það eru þeir Ezri Konsa og Jon Martín. Konsa er enskur landsliðsmaður sem spilar með Aston Villa og Martin er liðsfélagi landsliðsfyrirliðans Orra Steins Óskarssonar hjá Real Sociedad.

Martín er tvítugur miðvörður sem uppalinn er hjá Real Sociedad og lék fyrr á þessu ári sinn fyrsta landsleik fyrir Spán. Hann hjálpaði Sociedad að verða bikarmeistari í vor.
Konsa er 28 ára og getur bæði spilað sem miðvörður og hægri bakvörður. Hann á að baki 28 landsleiki fyrir England og skoraði í bronsleiknum gegn Frökkum á HM á laugardag. Hann hjálpaði Aston Villa að sigra Evrópudeildina í vetur.