20.07.26 - 00:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kvaddi með marki - „Vildum gera betur fyrir fólkið okkar hérna á Akureyri"
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ótrúlega sterkur sigur og mikilvægur í þessari fallbaráttu sem við erum í. Baráttan var lykillinn, þetta var erfitt í vindinum, við ætluðum að berja á þeim allan tímann og mér fannst við gera það mestallan tímann," segir Bríet Jóhannsdóttir, leikmaður Þórs/KA eftir sigur á ÍBV í Bestu deildinni í dag.
Bríet skoraði seinna mark Þórs/KA í leiknum.

Lestu um leikinn: Þór/KA 2 - 1 ÍBV
„Það var smá óreiða, mig langaði að skila mér á fjær og sá boltann koma fyrir, boltinn fór í sköflunginn og það skilaði marki. "
Bríet hefur skorað í tveimur leikjum í röð. Hvað breyttist hjá henni?
„Ég er komin á kantinn og nýt mín þar mjög vel. Ég hef verið alla yngri flokkana á kanti og mér finnst skemmtilegt að vera þar."
Þór/KA hefur unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum og tekið tíu stig úr síðustu fimm leikjum. Hvað breyttist eftir erfiða byrjun?
„Við ákvaðum bara að rífa okkur í gang, settumst niður og fórum yfir hvaða gildi við í Þór/KA vildum standa fyrir. Við vildum gera betur fyrir fólkið okkar hérna á Akureyri. Það er erfitt í KA og erfitt í Þór og sama með okkur. Við vildum aðeins rífa okkur í gang og loksins erum við búin að gera það sem ég er mjög stolt af."
Bríet er nú á leið til Bandaríkjanna í háskólanám og spilar ekki meira í sumar. „Það er bara spennandi og ég er ótrúlega spennt ða fylgjast með stelpunum hérna á Akureyri. Ég veit að þær munu komast upp úr þessari fallbaráttu," segir Bríet að lokum.

Besta kvenna
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Breiðablik | 18 | +25 | 37 |
| 2 | FH | 18 | +24 | 37 |
| 3 | ÍBV | 18 | -3 | 27 |
| 4 | Stjarnan | 18 | +4 | 26 |
| 5 | Þróttur R. | 18 | -3 | 23 |
| 6 | Grindavík/Njarðvík | 18 | -8 | 22 |
| 7 | Fram | 18 | -15 | 22 |
| 8 | Valur | 18 | -9 | 20 |
| 9 | Víkingur R. | 18 | -11 | 20 |
| 10 | Þór/KA | 18 | -4 | 19 |