Fotbolti.net
18.08.06 - 13:27
Magnús Már Einarsson

Kuyt til Liverpool (Staðfest)

Kuyt til Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur gengið frá kaupunum á Dirk Kuyt frá Feyenoord fyrir verð sem er talið vera tíu milljónir punda. Þessi 26 ára gamli leikmaður stóðst læknisskoðun í gær og hefur nú skrifað undir samning hjá Liverpool.
,,Hann verður góður leikmaður fyrir okkur. Hann er leikmaður með góðan leikskilning. Hann veit hvað á að gera með boltann og án boltans og hann er einnig duglegur," sagði Rafael Benitez stjóri Liverpool við heimasíðu félagsins.

,,Hreyfing hans er góð, færanýtingin hans er frábær og ég veit að hann mun skora mikið af mörkum fyrir okkur því nú höfum við meiri möguleika á köntunum og einnig á miðjunni," bætti Benitez við en hann sigraði Tottenham í kapphlaupinu um Kuyt.

Sjálfur sagði leikmaðurinn fyrr í vikunni: ,,Fyrir mig er Liverpool vissulega draumafélagið sem ég var að leita eftir," sagði Kuyt sem er 26 ára gamall. ,,Það var meiri áhugi á mér erlednis frá en það var ekkert álíka og Liverpool, sem er frábært félag með svakalegt orðsport, frábæran stuðning og magnaða sögu. Það er heiður að spila fyrir svona félag."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.