Fotbolti.net
18.08.26 - 19:20
Ívan Guðjón Baldursson

Féll á læknisskoðun hjá Sunderland

Flýgur aftur til Frakklands

Féll á læknisskoðun hjá Sunderland
Canon

Mynd: EPA

Bakvörðurinn efnilegi Dayann Méthalie er á leið með flugi aftur til Frakklands eftir að hann féll á hluta af læknisskoðun sinni hjá Sunderland.
Sunderland að kaupa franskan varnarmann
TENGT EFNI

Sunderland að kaupa franskan varnarmann

Sunderland náði samkomulagi við Toulouse um kaupverð fyrir Frakkann sem hljóðar upp á rúmlega 30 milljónir evra.

Méthalie er vinstri bakvörður að upplagi en getur einnig leikið sem miðvörður og á vinstri kanti.

Sunderland er mjög spennt fyrir leikmanninum og ætlar ekki að gefast upp þrátt fyrir misheppnaða læknisskoðun. Sky Sports segir að Méthalie muni gangast undir ítarlegri læknisskoðanir á næstu dögum, en Juventus, AC Milan, Lille og Bayer Leverkusen eru einnig sögð vera áhugasöm auk ýmissa félagsliða úr ensku úrvalsdeildinni.

Méthalie er tvítugur og með tólf leiki að baki fyrir yngri landslið Frakklands.
Féll á læknisskoðun hjá Sunderland
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.