18.08.26 - 22:14
Ívan Guðjón Baldursson
Hollenskur landsliðsmaður í Dortmund (Staðfest)
Kostar 22 milljónir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þýska stórveldið Borussia Dortmund var að bæta við nýjum leikmanni við hópinn sinn í dag.

TENGT EFNI
Dortmund opnar veskið til að kaupa Konstantelias (Staðfest)
Sá heitir Joey Veerman og er 27 ára miðjumaður sem kemur til félagsins úr röðum PSV Eindhoven.
Dortmund borgar 22 milljónir evra fyrir Veerman sem skrifar undir fimm ára samning.
Veerman er fjórði leikmaðurinn sem Dortmund fær til liðs við sig í sumar eftir Brasilíumanninum efnilega Kaua Prates og Grikkjunum öflugu Konstantinos Karetsas og Giannis Konstantelias
Veerman kom með beinum hætti að 23 mörkum í 41 leik með PSV á síðustu leiktíð og á 17 landsleiki að baki fyrir sterkt landslið Hollands.
Dortmund er búið að missa Yan Couto, Julian Brandt, Karim Adeyemi, Cole Campbell, Julien Duranville, Salih Özcan, Kjell Wätjen og Ousmane Diallo úr herbúðum sínum það sem af er sumars.

Hello, F•R•I•E•N•D. ???? pic.twitter.com/A06lQDCBjS
— Borussia Dortmund (@BlackYellow) August 18, 2026

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð