Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fös 18. september 2020 13:07
Magnús Már Einarsson
Guardiola um Foden á Íslandi: Hann veit að hann gerði mistök
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, tjáði sig um Phil Foden á fréttamannafundi sínum í dag.

Foden var rekinn úr enska landsliðshópnum á dögunum eftir að hann og Mason Greenwood brutu sóttvarnarreglur með því að bjóða tveimur íslenskum stelpum á hótel enska landsliðsins.

„Á þessum þremur eða fjórum dögum sem við höfum verið saman að undanförnu sé ég að hann veit að hann gerði mistök. Það er allt sem ég hef að segja," sagði Guardiola.

Manchester City hefur leik í ensku úrvalsdeildinni á mánudagskvöld en liðið heimsækir þá Wolves.
Athugasemdir