Fotbolti.net
18.10.26 - 15:28
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Ítalía: Lærisveinar Fabregas aftur á sigurbraut

Douvikas skoraði fyrir Como

Douvikas skoraði fyrir Como

Canon

Mynd: EPA

Cesc Fabregas og lærisveinar hans í Como eru komnir aftur á sigurbraut í Seríu A á Ítalíu eftir tvo leiki án sigurs.
Como hafði tapað stigum í síðustu tveimur deildarleikjum og var því mikilvægt fyrir liðið að ná í sigur í dag.

Það fór vel af stað hjá Como sem komst yfir með marki Mattia Liberali á 32. mínútu. Aðeins fjórum mínútum síðar tvöfaldaði argentínski sóknartengiliðurinn Nico Paz forystuna, en Marin Pongracic minnkaði muninn fyrir Fiorentina undir lok fyrri hálfleiks og hleypti spennu í leikinn á ný.

Como náði hins vegar aftur tveggja marka forystu á 56. mínútu þegar Grikkinn Anastasios Douvikas skoraði þriðja mark liðsins og þar við sat.

Með 3-1 sigrinum komst Como upp í fjórða sæti deildarinnar með 14 stig eftir sjö umferðir, en Fiorentina er í næstneðsta sæti með aðeins fjögur stig.

Lecce vann sömuleiðis sannfærandi sigur þegar liðið lagði Udinese að velli, 3-0.

Gaspar og Konan Ndri komu Lecce í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik áður en Jamil Siebert gerði endanlega út um leikinn með þriðja markinu undir lokin.

Lecce er í ellefta sæti með níu stig, en Udinese situr í 17. sæti með aðeins fjögur stig.

Fiorentina 1 - 3 Como
0-1 Mattia Liberali ('32 )
0-2 Nico Paz ('36 )
1-2 Marin Pongracic ('42 )
1-3 Anastasios Douvikas ('56 )

Udinese 0 - 3 Lecce
0-1 Gaspar ('11 )
0-2 Konan NDri ('33 )
0-3 Jamil Siebert ('86 )

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter7+1219
2Roma7+1317
3Lazio6+716
4Como7+514
5Milan7+613
6Frosinone7+413
7Cagliari6+313
8Juventus6+411
9Napoli7+310
10Atalanta7010
11Lecce7-39
12Sassuolo7-28
13Torino6-27
14Bologna7-45
15Monza6-64
16Parma6-64
17Udinese7-74
18Genoa7-84
19Fiorentina7-94
20Venezia7-103
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.