Fotbolti.net
18.10.26 - 16:30
Brynjar Ingi Erluson

Ngumoha tjáir sig um framtíðina

Rio Ngumoha

Rio Ngumoha

Canon

Mynd: EPA

Rio Ngumoha, leikmaður Liverpool og enska landsliðsins, hefur tjáð sig um framtíð sína hjá félaginu í viðtali við Lewis Steele hjá Daily Mail.
Liverpool hefur engar áhyggjur af stöðu Ngumoha
TENGT EFNI

Liverpool hefur engar áhyggjur af stöðu Ngumoha

Þessi 18 ára gamli vængmaður er talinn eitt mesta efni Englands og hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína með Liverpool.

Hann fékk ágætis tækifæri undir stjórn Arne Slot á síðustu leiktíð, en hefur fengið enn stærra hlutverk síðan Andoni Iraola tók við liðinu.

Frammistaða hans á síðasta tímabili vakti einnig athygli Thomas Tuchel, landsliðsþjálfara Englands, sem gaf honum tækifæri til að æfa og spila með A-landsliðinu í undirbúningi fyrir heimsmeistaramótið.

Ngumoha hefur síðan fest sig í sessi í landsliðshópnum og lék meðal annars með Englandi í Þjóðadeildinni í síðasta landsliðsverkefni.

Framtíð hans hjá Liverpool hefur verið töluvert til umræðu undanfarnar vikur, en hann er samningsbundinn félaginu til ársins 2028. James Pearce hjá Athletic greindi frá því að Liverpool hefði engar áhyggjur af stöðunni og að viðræður um nýjan samning væru í gangi.

Ngumoha hefur nú sjálfur tjáð sig um málið og segist lítið velta samningsmálunum fyrir sér.

„Þetta er allt í höndum umboðsmannsins míns núna. Ég held að viðræðurnar gangi vel, en ég er samt ekki alveg viss. Ég einbeiti mér bara að fótboltanum og læt frammistöðuna tala sínu máli.“

„Ég nýt þess að spila og allt hitt er mér ekki ofarlega í huga. Ég ætla bara að halda áfram að spila fyrir Liverpool og vonandi halda áfram að standa mig vel,“
sagði Ngumoha við Daily Mail.
Ngumoha tjáir sig um framtíðina
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.