18.10.26 - 17:00
Brynjar Ingi Erluson
Funheitur Brynjólfur skoraði gegn Ajax

Brynjólfur skoraði gegn Ajax og er nú kominn með sex deildarmörk

Mynd: EPA

Blikinn Brynjólfur Andersen Willumsson hélt áfram að raða inn mörkunum þegar hann skoraði fyrir Groningen í 5-2 tapi liðsins gegn stórliði Ajax í hollensku úrvalsdeildinni í dag.
Brynjólfur hefur verið iðinn við kolann í upphafi tímabilsins og var kominn með fimm mörk fyrir leikinn í dag.
Hann skoraði gegn Excelsior í síðustu umferð og var aftur á skotskónum í dag þegar hann minnkaði muninn í 2-1 gegn Ajax.
Þetta var sjötta deildarmark hans á tímabilinu og er hann nú markahæstur í deildinni ásamt fjórum öðrum leikmönnum.
Markið dugði Groningen þó ekki til stiga og situr liðið í sjöunda sæti með 14 stig, en Ajax er í fjórða sæti með 18 stig.
Daníel Tristan Guðjohnsen var í byrjunarliði Malmö sem tapaði 1-0 fyrir Häcken í sænsku úrvalsdeildinni. Hann fór af velli á 54. mínútu en Malmö situr í sjöunda sæti með 36 stig.
Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon voru báðir í byrjunarliði Brann sem tapaði 3-1 fyrir Vålerenga í norsku úrvalsdeildinni. Kolbeinn Birgir Finnsson var ekki með Vålerenga vegna meiðsla.
Brann er í sjöunda sæti með 29 stig en Vålerenga situr í ellefta sæti með 26 stig.
Breki Baldursson var í byrjunarliði Åsane sem tapaði 1-0 fyrir Stabæk í norsku B-deildinni. Åsane er í næstneðsta sæti með 22 stig.
Davíð Snær Jóhannsson var einnig í byrjunarliði Bryne sem beið 4-2 ósigur gegn Ranheim. Bryne situr í sjötta sæti með 39 stig.