18.10.26 - 15:37
Brynjar Ingi Erluson
Svekktur með að hafa aðeins fengið stig gegn Man Utd

Daniel Farke

Mynd: EPA

Daniel Farke

Mynd: EPA
Daniel Farke, stjóri Leeds United, var nokkuð svekktur með að lið hans hefði aðeins fengið eitt stig úr 1-1 jafnteflinu gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag.

TENGT EFNI
England: Man Utd tapaði stigum á Elland Road - Brighton á svakalegri siglingu
Leeds lenti undir gegn Manchester United á Elland Road en svaraði af krafti í síðari hálfleik, jafnaði metin og var í raun líklegra liðið til að tryggja sér öll þrjú stigin.
„Við erum svolítið svekktir með að hafa aðeins fengið eitt stig. Mér fannst við ekki eiga skilið að vera undir í hálfleik, en þetta er nú einu sinni Manchester United. Við náðum að jafna í síðari hálfleik og hefðum átt að fylgja því betur eftir. Alltof mörg skot fóru yfir markið, en heilt yfir var frammistaðan góð. Við hefðum átt að vinna þennan leik, en nú horfum við fram á veginn.“
„Við tókum því sem hrósi að vera taldir sigurstranglegri fyrir leikinn. Við höfum gert margt rétt undanfarinn mánuð og unnið okkur inn þá stöðu. Okkur langaði að sýna að það væri ástæða fyrir því að fólk hefði trú á okkur.“
„Við vorum sterkari aðilinn í leiknum en náðum ekki að nýta okkur yfirburðina. Það vantaði einfaldlega meiri gæði inni í teignum og í kringum hann.“
„Það segir mikið um þá virðingu sem við höfum áunnið okkur. Við erum komnir á þann stað og það er mjög góð staða að vera í.“
„Það er samt aldrei auðvelt að ná í stig í þessari deild. Við þurfum að nýta færin okkar betur, en um leið verðum við að halda áfram á sömu braut,“ sagði Farke.