Fotbolti.net
18.10.26 - 15:52
Brynjar Ingi Erluson

Arnór með sigurmark á lokasekúndunum - Tómas Bent fékk stóran skell

Arnór Sig skoraði sigurmarkið á lokasekúndum leiksins

Arnór Sig skoraði sigurmarkið á lokasekúndum leiksins

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson var hetja nýliða Kalamata þegar liðið vann 4-3 sigur á bikarmeisturum OFI Crete í grísku úrvalsdeildinni í dag.
Arnór byrjaði á bekknum hjá Kalamata en kom inn á 63. mínútu þegar lið hans var með tveggja marka forystu.

OFI Crete tókst hins vegar að vinna sig aftur inn í leikinn og jafnaði metin með tveimur mörkum á aðeins níu mínútum. Allt stefndi í jafntefli þegar Arnór steig fram og tryggði Kalamata sigurinn á dramatískan hátt.

Aðeins nokkrar sekúndur voru eftir þegar Julian Bonetto sendi boltann inn fyrir vörnina á Arnór sem skoraði sigurmarkið.

Þetta var jafnframt fyrsta mark Arnórs fyrir félagið síðan hann gekk til liðs við Kalamata frá Malmö í sumar.

Með sigrinum fór Kalamata upp fyrir OFI Crete og í sjötta sæti deildarinnar með tíu stig.

Tómas Bent Magnússon lék síðari hálfleikinn með Hearts sem steinlá 7-1 fyrir ríkjandi deildarmeisturum Celtic.

Celtic var þegar komið í 5-1 í hálfleik og bætti við tveimur mörkum í þeim síðari. Liðið situr á toppi deildarinnar með 24 stig en Hearts er í þriðja sæti með 16 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.