18.10.26 - 15:21
Brynjar Ingi Erluson
Tap hjá Hildi í erkifjendaslag

Hildur Antonts byrjaði í erkifjendaslag

Mynd: Newcastle United

Hildur Antonts byrjaði í erkifjendaslag

Mynd: Newcastle United

Hildur Antonsdóttir var í byrjunarliði Newcastle United sem tapaði 1-0 fyrir erkifjendum sínum og nágrönnum í Sunderland í enska deildabikarnum í dag.
Newcastle hefur farið frábærlega af stað í ensku B-deildinni og unnið alla fimm leiki sína, en gengið hefur ekki verið jafn gott í deildabikarnum þar sem liðið bíður enn eftir sínum fyrsta sigri.
Newcastle tapaði 3-1 fyrir Aston Villa í fyrstu umferðinni og beið svo annan ósigur í dag, nú gegn Sunderland.
Liðið lenti undir snemma í síðari hálfleik og rúmum tíu mínútum síðar fór Hildur af velli. Aðeins fimm mínútum eftir það fékk Newcastle gullið tækifæri til að jafna metin þegar liðið fékk vítaspyrnu, en Martha Thomas brást bogalistin af punktinum.
Newcastle mætir Everton næst í deildabikarnum, en á einnig eftir að spila gegn Manchester United, Nottingham Forest og Durham.
Í Svíþjóð komu Freyja Stefánsdóttir og María Catharina Ólafsdóttir Gros báðar inn af bekknum hjá Djurgården sem vann 3-2 sigur á Piteå í úrvalsdeildinni.
Djurgården situr í áttunda sæti deildarinnar með 27 stig.