18.10.26 - 17:10
Elvar Geir Magnússon
Siggi Raggi einu stigi frá færeyska meistaratitlinum

Sigurður Ragnar er kominn með níu fingur á færeyska meistarabikarinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson stýrir NSÍ Runavík í Færeyjum sem er aðeins einu stigi frá því að innsigla færeyska meistaratitilinn þegar tvær umferðir eru eftir.
NSÍ vann 1-0 sigur gegn 07 Vestur í dag á meðan keppinautarnir í KÍ í Klaksvík töpuðu 0-1 gegn B68.

TENGT EFNI
Má ekki hafa æfingar á sunnudögum því þá er kirkja
NSÍ hefur átt frábært tímabil undir stjórn Sigga Ragga og er nú á barmi þess að verða meistari í fyrsta sinn síðan 2007 en það er eini Færeyjameistaratitill NSÍ í sögunni.
Alex Freyr Elísson er meðal leikmanna NSÍ en hefur ekki spilað undanfarna leiki. Aron Knudsen skoraði sigurmark NSÍ á 83. mínútu í dag en stóri bróðir hans, Petur Knudsen, átti stoðsendinguna.
NSÍ er með sex stiga forystu á Klaksvík þegar tvær umferðir eru eftir en stöðuna má sjá hér að neðan. NSÍ getur tryggt sér meistaratitilinn næsta sunnudag á heimavelli gegn HB. Liðið mætir svo B68 á Tóftum í lokaumferðinni.