Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 18. október 2020 18:31
Ívan Guðjón Baldursson
Meiðsli Thiago ekki alvarleg - Alisson á undan áætlun
Mynd: Getty Images
Liverpool mönnum voru að berast afar slæmar fregnir þar sem ljóst er að Virgil van Dijk, besti varnarmaður heims, þarf að fara í aðgerð vegna meiðsla sem hann hlaut í jafntefli gegn Everton um helgina.

Jordan Pickford, markvörður Everton, tæklaði Van Dijk harkalega innan teigs og gæti miðvörðurinn verið frá út tímabilið.

Thiago Alcantara meiddist einnig í fjandslagnum gegn Everton og fékk Richarlison rautt spjald fyrir brotið. Meiðslin eru þó ekki alvarleg og ætti hann að vera klár í slaginn eftir um það bil viku.

Markvörðurinn Alisson Becker hefur verið fjarverandi vegna meiðsla og hefur verið flýtt fyrir endurkomu hans. Búist er við að Brassinn verði klár í slaginn fyrir næstu mánaðarmót.

Spænski markvörðurinn Adrian hefur verið mistækur í fjarveru Alisson og er ekki í uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner