18.12.05 - 07:00
Hafliði Breiðfjörð
Óskar Snær í Þrótt (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson


Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Framherjinn Óskar Snær Vignisson gekk í gær í raðir Þróttara. Óskar kemur frá Blönduósi þar sem hann hefur leikið með Hvöt mestan hluta ferils síns. Hann hafði verið eftirsóttur af mörgum liðum en valdi að ganga til liðs við Þróttara.
Óskar er 22 ára gamall vinstrifótar leikmaður sem getur spilað margar stöður á vellinum.
Hann skoraði 58 mörk í 86 leikjum fyrir Hvöt og Tindastól en flestir leikjanna eru fyrir Hvöt í 3. deild en undanfarin tvö ár hefur hann skorað 36 mörk í 33 leikjum fyrir liðið.
Hann skoraði 58 mörk í 86 leikjum fyrir Hvöt og Tindastól en flestir leikjanna eru fyrir Hvöt í 3. deild en undanfarin tvö ár hefur hann skorað 36 mörk í 33 leikjum fyrir liðið.
Heimild: Þróttur.is
