Fotbolti.net
18.12.07 - 19:06
Hörður Snævar Jónsson

Nery Castillo á láni til Manchester City (Staðfest)

Nery Castillo á láni til Manchester City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester CIty hefur komist að samkomulagi við Shaktar Donetsk um að fá Nery Castillo á láni í eitt ár.
Castillo mun ganga í raðir CIty í janúar. Castillo er 23 ára gamall framherji og kemur frá Mexíkó.

Castilla sem sló í gegn í Suður Ameríkubikarnum í sumar eftir að hafa skorað frábært mark gegn Brasilíu fór til Shakhtar frá Olympiakos í Griklandi í júlí en kaupverðið er talið hafa verið 20 milljónir evra.

Hann náði aldrei að sanna sig hjá Shakhtar og spilaði aðeins nokkra leiki og þá flesta eftir að hafa byrjað sem varamaður. Stundum komst hann ekki einu sinni í leikmannahóp liðsins.

Manchester City sýndu honum áhuga í sumar þegar hann sagðist vilja fara frá Olympiakos og hafa nú fengið hann til sín.

Heimild: Heimasíða Manchester City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.