19.01.05 - 17:16
Magnús Már Einarsson
Robbie Savage til Blakcburn Rovers (Staðfest)

Savage með Blackburn treyjuna ásamt stjóra liðsins Mark Hughes.


Savage með Blackburn treyjuna ásamt stjóra liðsins Mark Hughes.

Blackburn Rovers hefur gengið frá kaupunum á miðjumanninum Robbie Savage. Blackburn borgar Birmingham um þrjár milljónir fyrir Savage sem skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við fyrrnefnda liðið nú síðdegis.
Savage sem kynntur verður sem leikmaður Blackburn á morgun vildi komast frá Birmingham til að geta verið nær veikum foreldrum sínum sem búa í Wrexha í Wales en Savage. Eftir samningaviðræður milli félagana komust þau að samkomulagi um kaupverð og Savage er orðinn leikmaður Blakcburn eftir að hann stóðst læknisskoðun hjá félaginu í dag.
Savage sem er þrítugur kom til Birmingham frá Leiceseter í maí 2002 á 1,25 milljónir punda og skoraði hann alls tólf mörk í 88 leikjum með Birmingham.
Savage sem er þrítugur kom til Birmingham frá Leiceseter í maí 2002 á 1,25 milljónir punda og skoraði hann alls tólf mörk í 88 leikjum með Birmingham.
