19.01.06 - 11:35
Magnús Már Einarsson
Wise til Coventry (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enska fyrstudeildarliðið Coventry hefur samið við miðjujaxlinn Dennis Wise um að leika með liðinu út leiktíðina á samning sem er þannig að hann fær borgað fyrir hvern spilaðan leik.
Þessi 39 ára baráttujaxl fór frá Southampton þegar að George Burley var ráðinn stjóri liðsins í desember en þessi fyrrum enski landsliðsmaður hefur meðal annars leikið með Chelsea, Wimbledon, Leicester og Millwall á ferlinum.
Coventry skuldar 20 milljónir og Micky Adams stjóri liðsins tók sérstaklega fram að Wise fengi einungis borgað þegar hann spilaði. ,,Hnn er ekki að semja við okkur af fjárhagslegum ástæðum. Hann er reyndur atvinnumaður sem mun hjálpa okkur á stuttum samning. Ég held að viðbót hans við hópinn muni hjálpa öllum," sagði Adams.