19.01.06 - 16:04
Magnús Már Einarsson
Thompson til Wigan (Staðfest) - Mellor á leiðinni

Thompson fer í tæklingu á móti Hermanni Hreiðarssyni.

Mynd: Getty Images

Thompson fer í tæklingu á móti Hermanni Hreiðarssyni.

Mynd: Getty Images
Wigan hefur samið við David Thompson miðjumann Blackburn út þessa leiktíð og þá er liðið við það að ná samningum við Neil Mellor framherja Liverpool.
Hinn 28 ára gamli Thompson hefur átt við alvarleg hnémeiðsli að stríða á undanförnum árum. ,,Þetta hefur verið erfitt fyrir David. Hann hefur átt í miklum meiðslun og er að klára samninginn hér," sagði Mark Hughes stjóri Blackburn um Thompson.
Mellor sem er 23 ára hefur einnig átt í meiðslum og er hann nýkominn af stað eftir þau en hann hefur ekkert komið við sögu á leiktíðinni.
Mellor sem er 23 ára hefur einnig átt í meiðslum og er hann nýkominn af stað eftir þau en hann hefur ekkert komið við sögu á leiktíðinni.
