19.01.06 - 17:01
Magnús Már Einarsson
Mellor til Wigan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Neil Mellor hefur verið lánaður til Wigan frá Liverpool út þessa leiktíð en fyrr í dag náði fyrrnefnda liðið einnig að krækja í David Thompson miðjumann Blackburn.
Mellor sem er 23 ára er að koma aftur til eftir meiðsli en hann hefur ekkert komið við sögu hjá Liverpool á leiktíðinni. Það leit út fyrir það fyrr í mánuðinum að Hearts væri að krækja í leikmanninn en Wigan hefur nú náð í hann og ekki veitir af þar sem Henri Camara er á Afríkumótinu.
,,Hann gefur okkur nýja vídd og kemur með aukna samkeppni í hópinn eins og við þurfum núna. Neil er góður ungur sóknarmaður sem vill sanna sig aftur á þessu stigi. Hann er sterkur og leikinn og með auga fyrir mörkum. Ég er ánægður með að fá þá báða um borð," sagði Paul Jewell stjóri Wigan.