19.01.06 - 17:16
Magnús Már Einarsson
Villareal fær Franco en lætur Figueroa fara (Staðfest)

Luciano Figueroa er farinn til River Plate.

Mynd: Getty Images

Luciano Figueroa er farinn til River Plate.

Mynd: Getty Images
Villareal hefur fengið mexíkóska framherjann Guillermo Franco frá Monterrey en hefur aftur á móti sent argentínska framherjann Luciano Figueroa til River Plate.
Franco sem mun vera í treyju númer 99 hjá Villareal hefur gert þriggja og hálfs árs samning við liðið en það vonast til að leysa markaskorunarvandamál sín með því að fá hann.
Figueroa ku aftur á móti vera hræddur um að missa sæti sitt í argentínska landsliðinu fyrir HM þar sem hann hefur fengið fá tækifæri á leiktíðinni og því er hann farinn til River Plate. Reyndar mun Villareal áfram eiga helminginn á leikmanninum og þannig eiga möguleika á að fá hann aftur í framtíðinni.