Fotbolti.net
19.01.06 - 20:09
Magnús Már Einarsson

Bridge lánaður til Fulham (Staðfest)

Bridge lánaður til Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur fengið vinstri bakvörðinn Wayne Bridge að láni út tímabilið frá nágrönnum sínum í Chelsea. Hinn 25 ára gamli Bridge hefur lítið leikið með Chelsea á leiktíðinni en hann vonast til þess að með för sinni til Fulham eigi hann meiri möguleika á að spila og þá sanna sig fyrir Sven-Goran Eriksson landsliðsþjálfara Englendinga fyrir HM.
,,Næstu mánuðir eru ótrúleg mikilvægir fyrir mig við að spila reglulega. Ég myndi auðvitað vilja vera hluti af plönum Sven-Goran Eriksson fyrir HM," sagði Bridge sem hefur aðeins leikið tvo leiki á leiktíðinni síðan að hann kom aftur eftir erfið meiðsli í október.

Tottenham ku einnig hafa verið á eftir Bridge sem kom til Chelsea á sjö milljónir punda frá Southampton árið 2003. Martin Jol stjóri Tottenham gat hinsvegar ekki lofað Bridge föstu sæti í liðinu en hann sagði: ,,Þetta snýst meira um Bridge heldur en okkur. Hann vill spila og við getum ekki ábyrgst að leikmenn spili."

Chris Coleman stjóri Fulham var öllu sáttari við ganga mála en hann sagði: ,,Með því að kaupa Tony Warner og fá Simon Elliot, Antti Niemi og nú Wayne þá er ég meira en ánægður með það hvernig hlutirnir eru að þróast."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.