Fotbolti.net
19.01.23 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mudryk fetar í fótspor De Bruyne og Salah

Mudryk fetar í fótspor De Bruyne og Salah
Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea tilkynnti á dögunum komu Úkraínumannsins Mykhailo Mudryk til félagsins en hann hafði verið sterklega orðaður við Arsenal.

Mudryk er 22 ára gamall en hann kom til liðsins frá Shakhtar Donetsk.

Chelsea hefur nú staðfest að hann muni spila í treyju númer 15 en stór nöfn hafa spilað í treyjunni með misjöfnum árangri.

Didier Drogba spilaði fyrstu tvö árin hjá félaginu í treyju númer 15 áður en hann tók númer 11. Aðrir leikmenn sem náðu ekki að sýna sig í treyju númer 15 hjá félaginu voru Kevin de Bruyne og Mohamed Salah.

Oft er talað um að það séu álög yfir treyju númer 9 hjá félaginu en spurning hvernig Mudryk mun plumma sig með númer 15 á bakinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.