19.02.08 - 12:31
Hafliði Breiðfjörð
Sverrir Garðarsson til Sundsvall (Staðfest)

Sverrir Garðarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sverrir Garðarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sverrir Garðarsson miðvörður úr FH er genginn í raðir sænska úrvalsdeildarfélagsins Sundsvall og gerði í dag þriggja ára samning við félagið þar um. Sverrir er keyptur til félagsins frá FH en félögin höfðu náð samkomulagi um kaupverð fyrir helgi.
,,Þetta eru mjög góð kaup fyrir félagið," sagði Cain Dotson íþróttastjóri Sundsvall á vefsíðu félagsins. ,,Þetta er stór og sterkur víkingur sem sem eykur keppnisandann í hópnum margfalt, ," bætti hann við.
Sverrir er annar Íslendingurinn sem gengur til liðs við Sundsvall frá því að síðustu leiktíð lauk því áður hafði Ari Freyr Skúlason komið til félagsins frá Häcken. Sundsvall ætlar að boða til fréttamannafundar síðar í vikunni þar sem Sverrir verður kynntur formlega.
Sverrir er 23 ára gamall miðvörður. Hann alinn upp hjá FH en hefur verið á mála hjá Molde í Noregi um tíma. Hann á að baki 50 leiki í efstu deild hér á landi og hefur skorað í þeim eitt mark. Hann lenti í erfiðum meiðslum fyrir tímabilið 2005 og var frá keppni í tvær leiktíðir. Hann sneri svo aftur í lið FH fyrir síðustu leiktíð þar sem hann átti frábært sumar og spilaði 17 leiki og vann sér sæti í íslenska landsliðinu.
Upphaflega stóð til að kynna hann sem leikmann Sundsvall á föstudag en þá var fréttamannafundi frestað þar sem ekki tókst að ganga frá öllum lausum endum við samning við Sverri vegna skattamála.

Heimild: Vefsíða Sundsvall