Fotbolti.net
19.02.08 - 13:50
Hafliði Breiðfjörð

Chris Coleman tekur við Coventry (Staðfest)

Chris Coleman.

Chris Coleman.

Canon

Mynd: Getty Images

Chris Coleman hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Coventry City og skrifaði undir þriggja ára samning þess efnis við félagið í dag. Coleman sem áður stýrði Fulham hefur verið án starfs síðan hann hættihjá Real Sociedad í síðasta mánuði en þetta er hans þriðja knattspyrnustjóra starf þrátt fyrir að hann sé aðeins 37 ára gamall.
Ray Ranson formaður Coventry sagði að Coleman sé framsækinn ungur stjóri með frábæra þjálfunar kunnáttu.

Iain Dowie var rekinn frá Coventry 11. febrúar síðastliðinn eftir að Ranson sagði að skoðanaágreiningur hafi komið upp um framtíðarstefnu félagsins.

Coventry er í 20. sæti Championship deildarinnar sem er næst efsta deild Englands og töpuðu stórt, 5-0, fyrir WBA í enska bikarnum um helgina.

Dowie hafði tekið við liðinu í febrúar 2007 af Micky Adams en náði aðeins að vinna 20 af 49 leikjum sínum við stjórnvölinn.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.