Fotbolti.net
19.02.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Fyrrum leikmaður Newcastle tekinn við Marseille (Staðfest)

Beye í leik með Marseille fyrir um það bil 20 árum síðan.

Beye í leik með Marseille fyrir um það bil 20 árum síðan.

Canon

Mynd: EPA

Habib Beye, fyrrum bakvörður Newcastle og Aston Villa í enska boltanum, hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari Marseille í Frakklandi þar sem hann tekur við af Roberto De Zerbi.
Beye er 48 ára gamall og var lykilmaður á dvöl sinni hjá Marseille sem leikmaður. Hann fékk fyrirliðabandið hjá félaginu áður en hann var seldur til Englands.

Beye, sem lék 45 landsleiki fyrir Senegal, hafði stýrt Rennes í efstu deild franska boltans í rétt rúmt ár þegar hann var rekinn fyrr í febrúar. Hann gerði flotta hluti með liðið en slök úrslit síðustu leikja urðu til þess að stjórnendur ákváðu að reka hann.

Marseille er í fjórða sæti frönsku deildarinnar, sex stigum fyrir ofan Rennes.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.