Markvörðurinn Sveinn Sigurður Jóhannesson er kominn aftur heim í Stjörnuna átta árum eftir að hafa farið frá félaginu.
Sveinn Sigurður er 31 árs gamall og uppalinn Stjörnumaður en hann spilaði sína fyrstu deildarleiki með Stjörnunni árið 2014.
Hann var mikið efni en fékk fáa leiki til að sanna sig í Stjörnutreyjunni. Gunnar Nielsen stóð í markinu sumarið 2015, Dwayne Kerr árið 2016 og síðan tók Haraldur Björnsson við stöðunni árið 2017.
Sveinn fór til Vals eftir tímabilið 2017 og var þar til 2024 þar sem hann lék 10 deildarleiki. Hann fór til Vestra sumarið 2024 en varð fyrir óláni að slíta hásin á æfingu og náði því aldrei að spila fyrir félagið.
Á síðasta ári fór hann aftur í Val en er nú kominn aftur heim í Stjörnuna. Sveinn er spenntur fyrir komandi tímum í Garðabæ.
„Ég nenni ekki að hafa þetta of væmið, en það er varla sá staður til sem geymir jafn margar klukkustundir eða minningar og Stjörnuvöllurinn í mínu lífi. Gott að sjá að loksins sé búið að finna réttu uppáhellinguna frá dögunum þegar Siggi Dúlla bauð upp á svarta seyðið sitt. Það eru enn menn sem neita að drekka kaffi eftir þá reynslu.
„Ég mun leggja allt á borðið fyrir félagið, eins og ég hef alltaf gert. Massey Fergusoninn mun alltaf ganga, sama hvað á dynur. Það eru virkilega spennandi tímar framundan hjá Stjörnunni og ég hlakka til að mæta aftur á völlinn minn þar sem þetta allt byrjaði. Áfram Stjarnan!” sagði Sveinn við undirskrift.
Athugasemdir


