Fotbolti.net
19.03.23 - 16:35
Aksentije Milisic

Þýskaland: Langþráður sigur hjá Union - Fimm stigum frá toppnum

Þýskaland: Langþráður sigur hjá Union - Fimm stigum frá toppnum
Canon

Mynd: EPA

Union Berlin 2 - 0 Eintracht Frankfurt
1-0 Rani Khedira ('53 )
2-0 Kevin Behrens ('75 )

Union Berlin vann langþráðan sigur í dag þegar Eintracht Frankfurt kom í heimsókn.

Heimamenn voru lengi vel á toppi deildarinnar í Þýskalandi en hafa verið að gefa eftir að undanförnu. Liðið féll úr leik í Evrópudeildinni á fimmtudaginn og þá liðið unnið einungis einn leik af síðustu átta.

Frankfurt gat farið að narta í hælanna á Union með sigri en markalaust var í leikhléi.

Heimamenn kláruðu dæmið í þeim síðari en Rani Khedira og Kevin Behrens sáu til þess að Union náði loksins að vinna leik. Mjög mikilvægur sigur sem heldur liðinu í baráttunni.

Dortmund er í efsta sæti deildarinnar en Uniona er í því þriðja, fimm stigum á eftir þeim gulklæddu. Frankfurt er í sjötta sæti deildarinnar, átta stigum á eftir Union. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.