Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
banner
   fim 19. mars 2026 14:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimir framlengir á Írlandi (Staðfest)
Mynd: EPA
Heimir Hallgrímsson, þjálfari írska landsliðsins, greindi frá því á fréttamannafundi írska landsliðsins í dag að hann væri búinn að framlengja samning sinn írska sambandið fram að EM 2028 sem m.a. verður haldið á Írlandi.

Eyjamaðurinn hefur gert vel með írska landsliðið, liðið á möguleika á sæti á HM en framundan er umspilsleikur gegn Tékkum. Ef sá leikur vinnst fer Írland í úrslitaleik um sæti á HM gegn Danmörku eða Norður-Makedóníu.

„Ég sagði að ég vildi skrifa undir eftir undankeppnina eða keppnina, en það var mikil pressa frá sambandinu að skrifa undir fyrir þessa umspilssleiki," sagði Heimir á fundinum í dag.

„Þetta er örugglega svipuð launahækkun og hefur verið almennt á Írlandi síðustu tvö árin," sagði Heimir á léttu nótunum þegar hann var spurður hvort hann hafi fengið launahækkun.

Heimir hefur stýrt Írum í 16 leikjum, sjö þeirra hafa unnist, sex tapast og jafnteflin eru þrjú.

Heimir tók við Írum eftir að hafa stýrt landsliði Jamaíka. Þar á undan var hann með Al-Arabi í Katar eftir að hafa komið Íslandi á HM sem aðalþjálfari landsliðsins og verið í teymi með Lars Lagerback þegar Ísland komst á EM 2016.


Athugasemdir
banner