Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   fim 19. mars 2026 06:30
Kári Snorrason
Luis Alberto í Þorlák (Staðfest) - „Týndi sonurinn kominn heim“
Luis Alberto og Sigurður Tómas Hjartarson, formaður Þorláks.
Luis Alberto og Sigurður Tómas Hjartarson, formaður Þorláks.
Mynd: Þorlákur
Luis Alberto Rodriguez Quintero er genginn í raðir Þorláks í 5. deildinni. Luis lék með liðinu í Boladeildinni fyrir fjórum árum síðan en hefur nú fengið varanleg félagaskipti í Þorlák.

Þorlákur er að styrkja raðirnar fyrir komandi tímabil í 5. deildinni en liðið endaði í 5. sæti í B-riðli í fyrra.

Úr tilkynningu Þorláks:
Týndi sonurinn er mættur heim. Velkominn, Luis.

Luis Alberto Rodriguez Quintero, eða betur þekktur sem Junior, þarf vart að kynna fyrir okkar helstu stuðningsmönnum. Hann hefur verið hluti af fjölskyldunni okkar síðan hann kom fyrst til Íslands.

Hann byrjaði með okkur í Bola-deildinni árið 2022 og er nú loksins mættur til okkar formlega. Við vitum hvað Junior hefur upp á að bjóða. Hæfileikar hans og persónutöfrar munu hjálpa liðinu að ná markmiðum okkar í sumar.


Athugasemdir
banner