Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   fim 19. mars 2026 14:58
Fótbolti.net
Stærsti samningur í sögu Víkings
Mynd: Víkingur
Víkingur hélt kynningarfund í dag þar sem félagið frumsýndi nýja treyju og einnig nýjan aðalstyrktaraðila, Boozt, sem er framan á nýju búningnum.

„Samningurinn er til fjögurra ára og er sá stærsti í sögu félagsins og með samningnum er staða Víkings staðfest sem verðmætur samstarfsaðili alþjóðlegs vörumerkis," segir á heimasíðu Víkings.

Hermann Haraldsson, forstjóri og meðstofnandi Boozt, segir Víking vera félag með sterkan metnað og glæsilegan grunn.

„Fyrir mig hefur samstarfið einnig persónulega tengingu. Ég fæddist og ólst upp á Íslandi. Hjá Boozt höfum við alltaf átt náið samband við Ísland. Við sjáum mikla möguleika í þeirri miklu þróun sem Víkingur er að ganga í gegnum. Að styðja félag með metnað til að keppa á hæsta stigi og þróa jafnframt ungt hæfileikafólk er eitthvað sem við erum stolt af að vera hluti af," segir Hermann en nánar er rætt við hann í spilaranum hér að ofan.

Hermann er fyrrum framkvæmdastjóri Bröndby og stjórnarmaður í félaginu. Hann ræddi meðal annars um fræga heimsókn Bröndby á Víkingsvöll í fyrra.

Halldór Smári Sigurðsson, fyrrum leikmaður Víkings, hannaði nýju treyjuna.

„Ég er ekki hlutlaus en að mínu mati er þetta best heppnaða Víkingstreyja sem ég hef tekið þátt í að hanna. Ég er ótrúlega ánægður með hana - í raun svo ánægður að mig langar að hringja í Sölva og segja honum að ég sé ekki hættur," segir Halldór Smári.
Slapp
banner