Fotbolti.net
19.04.05 - 11:50
Magnús Már Einarsson

Nörholt einnig til Fram (Staðfest)

Nörholt einnig til Fram (Staðfest)
Canon
Fram hefur samið við danska leikmanninn Kim Nörholt um að hann leiki með liðinu í sumar og einnig hafa Framarar náð samkomulagi við FC Fredericia félag Kim um félagaskiptin.
Nörholt sem er 32 ára miðjumaður hefur leikið með FC Fredericia í dönsku 1. deildinni. Hann hefur m.a. leikið með Vejle, Silkeborg og Kolding í SAS deildinni (úrvalsdeildin í Danmörku). Kim er 185 sm á hæð og 84 kg.

Hann er mikill reynslubolti sem hefur verið lykilleikmaður hjá FC Fredericia í dönsku 1. deildinni. Hann hefur leikið 54 leiki með FC Fredericia og skorað í þeim 12 mörk. Kim mun koma til Fram 1.maí og taka þátt í lokaundirbúningi liðsins fyrir Íslandsmótið.

Nörhölt er annar Daninn sem Fram semur við á skömmum tíma því að í gær samdi miðjumaðurinn Hans Mathiesen við liðið.

Sjá einnig:
Hans Mathiesen til Fram

Upplýsingar af heimasíðu Fram
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.