Fotbolti.net
19.04.22 - 22:20
Anton Freyr Jónsson

Jón Þór: Stuðningurinn algjörlega magnaður

Auglýsing
Jón Þór Hauksson tók við af Jóa Kalla. Hér er hann í Garðabænum í kvöld.

Jón Þór Hauksson tók við af Jóa Kalla. Hér er hann í Garðabænum í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er svekkelsi. Mér fannst koma hrikalega mikill kraftur í okkur hérna í restina og við vorum alltaf að gæla við að taka stigin þrjú. Við vorum í fínni stöðu í hálfleik og það slær okkur svolítið útaf laginu byrjunin á seinni hálfleik að þeir skyldu jafna þar og við vorum svolítið lengi að ná okkur upp úr því." voru fyrstu viðbrögð Jón Þórs Haukssonar þjálfara ÍA 

Stjarnan fékk margar og hornspyrnur í leiknum í dag og var Jón Þór spurður út í varnarleik liðsins í kvöld.

„Heilt yfir já en eins og ég segi það sló okkur svolítið útaf laginu í upphafi seinnihálfleiks og ég er ekki ánægður með það og eitthvað sem við þurfum að laga en heilt yfir gríðarlega ánægður með frammistöðuna."

ÍA fær Íslands og bikarmeistara Víkings í heimsókn upp á Skaga á Sunnudaginn og er Jón Þór spenntur fyrir þeim leik.

„Algjörlega. Það var bikarúrslitastemming hérna á leiknum í dag og stuðningurinn sem við fengum var algjörlega magnaður, mættir klukkutíma fyrir leik og mættir til að styðja okkur og hvetja okkur í upphituninni og það er kraftur sem leikmenn tóku með sér inn í leikinn og eigum frábæran fyrri hálfleik og við þurfum á þeim stuðning að halda á Sunnudaginn. Víkingarnir eins og þú segir Íslands og bikarmeistarar og það verður frábær leikur"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.