Fotbolti.net
19.05.06 - 14:50
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Toulalan til Lyon (Staðfest)

Toulalan í baráttu við Thorsten Fink hjá Bayern Munchen fyrir rúmum fjórum árum

Toulalan í baráttu við Thorsten Fink hjá Bayern Munchen fyrir rúmum fjórum árum

Canon

Mynd: Getty Images

Frönsku meistaranir í Lyon gengu í dag frá kaupu á hinum unga og efnilega Jeremy Toulalan frá Nantes fyrir sjö milljónir punda. Toulalan, sem er 22 ára gamall, hefur skrifað undir fjögurra ára samning við klúbbinn.
Toulalan spilar sömu stöðu og Mahamadou Diarra sem bæði Manchester United og Real Madrid eru á eftir en Gerard Houllier, stjóri Lyon, vill ekki meina að kaupin á Toulalan þýði að Diarra sé að fara.

,,Hann kemur til að spila á miðjunni. Þýðir það að fara leikmenn í þeirri stöðu frá liðinu í sumar? Nei, ekki eins og staðan er núna en við skulum bíða og sjá hvað leikmennirnir vilja,” sagði Houllier.

Þá sagði Jean-Michel Aulas einnig að Nilmar færi frá liðinu í sumar til Corinthians en hann hefur verið þar á lánssamningi uppá síðkastið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.