19.05.08 - 17:05
Magnús Már Einarsson
Lee Carsley til Birmingham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Lee Carsley hefur gert tveggja ára samning við Birmingham City en hann yfirgaf Everton í dag.
Þessi knái Íri hafnaði nýjum samningi hjá Everton þar sem hann vildi flytjast nær fjölskyldu sinni sem býr í námunda við Birmingham.
Derby og WBA reyndu einnig að fá Carsley í sínar raðir en hann ákvað að hafna samningstilboðum frá þeim.
,,Ég hef gengið til liðs við félag sem er að byggja upp fyrir framtíðina og reyna að komast þangað sem Everton er," sagði Carsley sem er 34 ára.
Carsley var í sex ár hjá Everton en hann kom til liðsins frá Coventry árið 2002.

Heimild: BBC