Fotbolti.net
19.06.25 - 19:40
Ívan Guðjón Baldursson

Gerhard Struber tekinn við Bristol City (Staðfest)

Gerhard Struber tekinn við Bristol City (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Championship félagið Bristol City er búið að ráða Gerhard Struber sem nýjan þjálfara eftir að Liam Manning yfirgaf félagið fyrr í mánuðinum.
Manning fór frá Bristol til að taka við heimaliði sínu Norwich City og tekur Struber við af honum.

Bristol komst í umspil Championship deildarinnar á nýliðnu tímabili en tapaði þar í undanúrslitum.

Struber var í toppbaráttunni í næstefstu deild þýska boltans á síðustu leiktíð en var rekinn frá Köln þegar aðeins tvær umferðir voru eftir af deildartímabilinu.

Hinn 71 árs gamli Friedhelm Funkel tók við Köln og stýrði liðinu til sigurs í síðustu tveimur deildarleikjunum. Hann tryggði félaginu þannig titilinn og sæti í efstu deild.

Gerhard Struber tekinn við Bristol City (Staðfest)
Canon

Mynd: Bristol City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.