Fotbolti.net
19.06.25 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson

Hernan Crespo ráðinn þjálfari Sao Paulo í annað sinn (Staðfest)

Hernan Crespo ráðinn þjálfari Sao Paulo í annað sinn (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Argentínska goðsögnin Hernan Crespo er tekinn við brasilíska félaginu Sao Paulo í annað sinn en þetta staðfestir félagið á heimasíðu sinni.
Crespo er í miklum metum hjá Sao Paulo og stuðningsmönnum félagsins eftir að hafa gert liðið að deildarmeistara árið 2021.

Hann var látinn fara í október sama ár eftir slakt gengi á nýju tímabili og hélt því næst til Mið-Austurlandanna þar sem hann stýrði Al Duhail frá Katar og Al AIn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Argenínumaðurinn vann þrjá titla hjá Al Duhail og gerði Al Ain að Asíumeisturum á síðasta ári.

Crepso, sem átti frábæran feril sem leikmaður með liðum á borð við Chelsea, Inter, Milan og Parma, er nú mættur aftur til Sao Paulo, en hann gerði tveggja og hálfs árs samning við félagið í gær.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.