Fotbolti.net
19.06.26 - 10:07
Elvar Geir Magnússon

Arsenal reynir við Monga og Barcola - Thuram til Liverpool?

Jeremy Monga.

Jeremy Monga.

Canon

Mynd: Leicester

Powerade
Góðan og gleðilegan föstudag. BBC hefur tekið saman helsta slúðrið sem er í gangi í boltanum. Englandsmeistarar Arsenal ætla að styrkja sig enn frekar.
Leicester hefur hafnað fyrsta tilboði Arsenal í kantmanninn Jeremy Monga (19). Hann er einn af þeim leikmönnum sem Arsenal lítur á sem mögulegan framtíðarmann. (Telegraph)

Arsenal er einnig að undirbúa tilboð í franska kantmanninn Bradley Barcola (23) hjá Paris St-Germain. (Independent)

RB Leipzig hefur sett sig í samband við Everton vegna franska sóknarmannsins Thierno Barry (23). (Times)

Everton hefur enn ekki fengið formlegt tilboð í Barry en ef það kemur þá mun fótboltadeild félagsins funda um næstu skref. (Liverpool Echo)

Real Madrid hyggst halda áfram endurnýjun á leikmannahópi sínum með því að fá inn miðjumann og miðvörð. Argentínski miðjumaðurinn Enzo Fernandez (25) hjá Chelsea er einn af þeim sem er í miklum metum hjá félaginu. (ESPN)

Tottenham hefur áhuga á Nathan De Cat (17), belgískum miðjumanni Anderlecht. Fleiri félög í úrvalsdeildinni hafa áhuga á honum. (TeamTalk)

Liverpool hefur endurnýjað áhuga á franska miðjumanninum Khephren Thuram (25) hjá Juventus. (Corriere dello Sport)

Liverpool er einnig á eftir miðjumanni, miðverði og hægri bakverði eftir að hafa tryggt sér Victor Munoz (22), kantmann frá Osasuna. (Football Insider)

Tottenham hefur áhuga á Mateus Fernandes (21), miðjumanni West Ham. Real Madrid og Manchester United horfa einnig til Portúgalansa en hann er metinn á 80 milljónir punda. (The Athletic)

West Ham hefur áhuga á sóknarmanninum Wilson Isidor (25) frá Haítí sem hjálpaði Sunderland að komast upp í úrvalsdeildina á síðasta ári. (Football League World)
Khéphren Thuram.

Khéphren Thuram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.