Fotbolti.net
19.06.26 - 12:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fram ekki sigrað Víking síðan 2011 - „Það er alveg hægt að vinna þá"

Markinu 1. október 2011 fagnað. Á myndinni eru markaskorarinn Steven Lennon og Andri Júlíusson.

Markinu 1. október 2011 fagnað. Á myndinni eru markaskorarinn Steven Lennon og Andri Júlíusson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram tekur á sunnudagskvöld á móti Víkingi í toppslag Bestu deildarinnar. Víkingur er á toppi deildarinnar eftir ellefu leiki með 31 stig en Fram er í þriðja sæti með 23 stig eftir tíu leiki.

Leikurinn hefst klukkan 20:15 og fyrir leik verða pallborðsumræður til að hita upp fyrir leikinn. Liðin hafa þegar mæst einu sinni í ár, en Víkingur sigraði Fram, 2-4, í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í apríl.

Fram sigraði Víking síðast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins 2023 en það þarf að fara aftur um tæp 15 ár til að finna síðasta deildarsigur Fram á Víkingi. Frá þeim leik hefur Víkingur unnið níu deildarleiki og tvisvar hafa liðin gert jafntefli.

Leikur liðanna í Úlfarsárdal í fyrra endaði með 2-2 jafntefli og þá var Atli Þór Jónasson, sem nú er á láni hjá Fram, annar markaskorari Víkings.
Í leiknum 2011 skoraði Steven Lennon eina mark leiksins á 43. mínútu. Í liði Víkings voru leikmenn eins og Halldór Smári Sigurðsson, Sigurður Egill Lárusson og Viktor Jónsson. Á bekknum var Helgi Sigurðsson sem er í dag aðstoðarþjálfari Fram, hann kom inn á sem varamaður í leiknum.

Ögmundur Kristinsson varði mark Fram í leiknum en hann er í dag í leikmannahópi Víkings. Landsliðsþjálfarinn Arnar Bergmann Gunnlaugsson var í byrjunarliði Fram en hann stýrði Víkingum á árunum 2019-2024.

Þurfum að reyna finna einhverja leið
Fótbolti.net ræddi við þjálfara Fram, Rúnar Kristinsson, í gær og var hann spurður út í komandi leik. Hvernig leggst leikurinn í þig, er hægt að vinna Víking?

„Já, auðvitað er hægt að vinna Víking, þú getur unnið öll lið í fótbolta. Víkingur er með mjög mikla yfirburði, maður horfir á hópinn þeirra; það er nóg að horfa á þá sem eru á bekknum og uppi í stúku, hvað þá byrjunarliðið þeirra."

„Þeir eru með yfirburðarstöðu og hafa sýnt að það eru gríðarleg gæði í sínu liði. En það er alveg hægt að vinna þá, það er orðið svolítið langt síðan þeir töpuðu fótboltaleik og við þurfum að reyna finna einhverja leið."

„Það eru allir að reyna finna leiðir til að taka stig af þeim eða vinna þá. Við hinir þjálfararnir í deildinni þurfum að reyna finna leiðir til að stoppa þá á einhvern hátt og reyna taka af þeim stig. Það er erfitt verkefni, þeim líður vel, eru frábærlega mannaðir, með góðan þjálfara og gott teymi í kringum liðið. Þeir hafa gert vel í mörg ár og það er ekkert lið að ógna þeim í bili, en við munum reyna,"
segir Rúnar.
Helgi Sigurðsson er í dag aðstoðarþjálfari Fram.

Helgi Sigurðsson er í dag aðstoðarþjálfari Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar í leik með Fram.

Arnar í leik með Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.11+3031
2KR11+1325
3Fram10+1023
4Breiðablik10+716
5ÍA10-315
6Valur11-415
7Stjarnan11-411
8Keflavík10-711
9KA10-410
10ÍBV10-68
11Þór10-196
12FH10-135
Ögmundur stóð vaktina í marki Fram um árabil.

Ögmundur stóð vaktina í marki Fram um árabil.

Canon

Mynd: Grindavík-Fram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.