„Mun ekki fá ást frá öllum"

Freyr á heimavelli Brann í Bergen.

Mynd: Fótbolti.net - Valur Gunnarsson

Freyr gerði góða hluti með Brann.

Mynd: Brann

Freyr á heimavelli Brann í Bergen.

Mynd: Fótbolti.net - Valur Gunnarsson
Þegar Freyr Alexandersson snýr aftur til Bergen sem þjálfari Rosenborg verður það einn stærsti viðburður norska fótboltasumarsins.
„Þetta er nú þegar einn stærsti leikurinn í norska boltanum. Þessi ráðning bætir enn meiri kryddi við hann,“ segir Mads Boyum, fótboltablaðamaður í Bergen, við Fótbolta.net.
„Margir munu taka vel á móti honum og jafnvel klappa fyrir honum. En hann mun ekki fá ást frá öllum.“
Freyr er nefnilega tekinn við einum stærsta erkifjenda Brann stuttu eftir að hann yfirgaf félagið. Hann skildi eftir sig sterka arfleifð hjá Brann. Undir hans stjórn komst félagið í Evrópukeppni í fyrsta sinn síðan 2008 og náði eftirminnilegum úrslitum, þar á meðal 3-0 sigri gegn Rangers, markalausu jafntefli gegn Bologna og var aðeins örfáum mínútum frá stigi gegn Lille. Liðið kom liðinu jafnframt í bikarúrslit þar sem naumt tap gegn Bodö/Glimt var niðurstaðan.
Hann stýrði líka Brann á meðan félagið kláraði tvær stærstu leikmannasölur í sögu sinni og skapaði stemningu í stúkunni sem Bergen hafði ekki upplifað um árabil.
„Margir telja því að brottför hans hafi komið of snemma, þrátt fyrir erfiða byrjun á þessu tímabili," sagði Boyum en brottrekstur Freys er mjög umdeildur í Bergen.
Nú bíður hans enn stærra verkefni. Að bjarga Rosenborg frá fallsæti er eitt en að færa félagið aftur á þann stað sem stuðningsmenn telja að það eigi heima er allt annað.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 18. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

TENGT EFNI
Íslensk yfirtaka hjá stærsta félagi Noregs - „Lið í miklum vandræðum"

Freyr gerði góða hluti með Brann.

Mynd: Brann