19.07.06 - 13:07
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Jay Jay Okocha í lið í Qatar (Staðfest)

Okocha er á leiðinni til Quatar

Mynd: Getty Images

Okocha er á leiðinni til Quatar

Mynd: Getty Images
Fyrrum nígeríski landsliðsmaðurinn Jay-Jay Okocja hefur skrifað undir eins árs samning við Sports Club frá Quatar.
Okocha fer á frjálsri sölu en hann spilaði 123 leiki fyrir Bolton og skoraði í þeim átján mörk síðan hann kom frá Paris St. Germain árið 2002.
,,Auðvitað er Jay-Jay að koma hingað til að hjálpa okkur að vinna. Hann stóðst læknisskoðun og mun hitta liðsfélagana á æfingasvæði í Tékklandi fljótlega,” sagði Sheikh Jassim bin Hamad bin Nasser Al Thani sem er í stjórn félagsins.
Þá hefur ástralski varnarmaðurinn Tony Popovic gengið til erkifjandanna í Al Arabi Sports Club. Popovic kemur frá Crystal Palace þar sem hann hefur verið undanfarin fimm ár.