Fotbolti.net
19.07.07 - 13:23
Magnús Már Einarsson

Gabriel Milito til Barcelona (Staðfest)

Milito í baráttu við Samuel Eto´o.  Þeir eru núna orðnir liðsfélagar hjá Barcelona.

Milito í baráttu við Samuel Eto´o. Þeir eru núna orðnir liðsfélagar hjá Barcelona.

Canon

Mynd: Getty Images

Barcelona hefur gengið frá kaupunum á argentínska varnarmanninum Gabriel Milito frá Real Zaragoza en kaupverðið gætið orðið allt að 20,5 milljónir evra. Þessi 26 ára gamli leikmaður stóðst læknisskoðun hjá Barcelona í dag og gerði fjögurra ára samning við félagið.
,,Þetta er draumur fyrir mig. Barca er hjá mörgum talið vera besta lið í heimi," sagði Milito sem mun berjast við Lilian Thuram og Rafael Marquez um stöðu í vörninni í byrjun tímabilsins þar sem að Carles Puyol verður ekki með í upphafi vegna meiðsla.

Milito kom til Zaragoza frá Independiente árið 2003 en Real Madrid hafði hætt við að fá hann skömmu áður þar sem að félagið hafði áhyggjur af hnémeiðslum sem leikmaðurinn varð fyrir árið 2001.

Aðspurður hvort að þessi félagaskipti væru ákveðin hefnd gegn Real svaraði Milito: ,,Nei. Við veðrum að gleyma því sem gerðist í fortíðinni. Ég hef alltaf viljað koma hingað og ég vonast til að geta endurgoldið félaginu á vellinum fyrir þá trú sem það hefur sýnt mér."

Milito er fjórði leikmaðurinn sem kemur til Barcelona í sumar en áður höfðu Thierry Henry, Yaya Toure og Eric Abidal komið til félagsins.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.