Fotbolti.net
19.07.07 - 18:29
Hafliði Breiðfjörð

Franco Semioli til Fiorentina (Staðfest)

Franco Semioli til Fiorentina (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Fiorentina hefur gengið frá kaupunum á kantmanninum Franco Semioli frá Chievo og mun hann vera kynntur sem nýr leikmaður félagsins á morgun.
Semioli hafði verið orðaður við Napoli undanfarnar vikur eftir að áhugi Fiorentina virtist hafa dvínað en núna hefur hann skrifað undir fjögurra ára samning á Artemio Franchi.

Ekki er vitað hversu mikið Fiorentina þarf að borga fyrir Semioli, sem hefur spilað tvo landsleiki fyrir Ítalíu, en talið er að það sé í kringum fimm milljónir punda.

,,Hann er leikmaður sem við viljum og höfum fylgst með í tvö ár. Hann hefur gæði og réttu reynsluna. Það sem skipti einnig miklu máli hversu mikið hann vildi koma hingað. Það er mjög mikilvægt fyrir mig að leikmennirnir trúi á verkefnið okkar,” sagði Cesare Prandelli, stjóri Fiorentina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.