19.07.07 - 18:36
Hörður Snævar Jónsson
Alou Diarra til Bordeaux (Staðfest)

Í úrslitaleik HM.

Mynd: Getty Images

Í úrslitaleik HM.

Mynd: Getty Images
Bordeaux hefur fest kaup á Alou Diarra frá frönsku meisturunum í Lyon. Hann gengur til liðs við Bordeaux eftir að félagið komst að samkomulagi við Lyon um kaupverðið.
,,Diarra mun fara til Bordeaux á fjögurra ára samningi og kaupverðið er 7,75 milljónir evra," var sagt í tilkynningu á heimasiðu Lyon.
Diarra sem er 26 ára gamall miðjumaður á að baki 12 landsleiki með Frakklandi og var hluti af franska liðinu sem endaði í öðru sæti á HM 'i fyrra sumar.
Diarra sem er 26 ára gamall miðjumaður á að baki 12 landsleiki með Frakklandi og var hluti af franska liðinu sem endaði í öðru sæti á HM 'i fyrra sumar.
Heimild: Reuters
