Chelsea opnar viðræður við Milan - Saliba í samningaviðræðum - Bellingham til Dortmund?
Óskar Hrafn: Þegar tveir strengir slitna tekur tíma að ná aftur takti við hljómsveitina
Rúnar vildi fá víti: Dómarinn á að sjá þetta betur en ég
Jökull: Enginn fór og henti kuðung í sturtubotninn
Þorri Mar þakklátur Stjörnunni - „Sýnir að það sé ekkert okkar á milli"
Láki: Það var reiðarslag fyrir okkur
Valor fékk að velja undir lok gluggans: Gott að sjá vini mína aftur
Jón Þór: Töpum á öllum sviðum leiksins og ég á enga útskýringu á því
Sá yngsti í sögunni: Fór beint heim, hringdi í alla og lét þau vita
Birkir mjög sáttur á Hlíðarenda: Eignuðumst barn og konan vildi koma suður
Túfa: Sást í augunum á mönnum að menn vildu svara fyrir sig
Lúkas Logi: Þetta er ekkert flókið
Gunnar Már: Jöfnunarmarkið var 100% brot
Halli Hróðmars: Þetta var flókinn dagur
Gunnar Heiðar: Erum á góðri leið með þetta lið
Alli Jói: Ógeðslega lengi út úr rútunni
Aron Snær: Pirrandi að við erum búnir að fá okkur tvö skítamörk
Davíð Smári hrósaði Fatai í hástert - „Gjörsamlega stórkostlegur"
Kallar eftir virðingu frá dómurum - „Vonandi kemur VAR í íslenska boltann sem fyrst"
Bjarni Jó: Blessaður vertu ég er búinn að vera í þessu í tæp 40 ár
Pablo Aguilera: Vissulega kalt fyrir mig komandi frá Spáni
   fim 19. júlí 2018 21:46
Egill Sigfússon
Viðar Ari: Verð mögulega út tímabilið, kemur í ljós á næstu dögum
Viðar Ari gæti verið áfram hjá FH
Viðar Ari gæti verið áfram hjá FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH gerði 0-0 jafntefli við Lahiti í Kaplakrika í kvöld eftir að hafa unnið úti í Finnlandi 0-3. FH er því komið áfram í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar þar sem þeir mæta Apoel Haifa. Viðar Ari Jónsson leikmaður FH fannst liðið klára einvígið mjög vel.

Lestu um leikinn: FH 0 -  0 Lahti

„Við komum virkilega vel út úr fyrri leiknum, setjum þrjú mörk á útivelli og vissum það í kvöld að við vorum með forrystu. Mér fannst við gera virkilega vel og klára dæmið mjög fagmannlega."

Viðar Ari hefur spilað stórt hlutverk og spilaði í varnarlínu með Hirti Loga, Eddi Gomes og Rennico Clarke í kvöld. Viðari fannst sú varnarlína vera að virka mjög vel.

„Mér fannst hún virka mjög vel í kvöld, þeir fá enga sénsa og við náðum að loka öllu sem þeir voru að gera."

Viðar Ari er á láni frá Brann og var fyrst bara samið um að hann yrði þangað til í Júlí en hann segir það möguleika að hann verði út tímabilið.

„Það eru einhverjar viðræður í gangi þannig að satt að segja er þetta enn að skýrast. Það gæti verið að ég fari aftur út eða verði áfram en það kemur allt í ljós á næstu dögum."

Viðar segist vera til í að vera áfram út tímabilið enda sé hann að spila alla leiki í flottu liði en segir einnig að hann gæti farið til Brann ef hann sér fram á að spila hjá sínu liði.

„Þetta er svolítið erfitt, það er mjög gott að vera hér og spila alla leiki í deild og í evrópukeppni og vera með mikilvægt hlutverk. Aftur á móti er Brann félagsliðið sem ég er skráður hjá og það væri gott að fá að spila þar."
Athugasemdir
banner
banner
banner