Celtic búið að bæta nokkrum við sig (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA
Celtic er að undirbúa sig fyrir komandi átök í Skotlandi og Evrópu og þarf að styrkja hópinn sinn eftir söluna á portúgalska kantmanninum Jota til Sádí-Arabíu.
Skoska stórveldið hefur verið að styrkja sig með leikmönnum frá Japan og Suður-Kóreu að undanförnu og keypti varnartengiliðinn Tomoki Iwata frá Yokohama F. Marinos á dögunum.
Iwata var á láni hjá Celtic í vor og ákvað félagið að festa kaup á þessum 26 ára landsliðsmanni Japans eftir að hann hreif þjálfarateymið.
Celtic er þá einnig búið að krækja í Hyun-jun Yang, sóknarleikmann Gangwon FC í Suður-Kóreu. Celtic borgar aðeins 2 milljónir punda fyrir, en hinn 21 árs gamli Yang kom að tveimur mörkum í 21 deildarleik í kóresku deildinni á síðustu leiktíð.
Hyeok-kyu Kwon verður þá kynntur sem nýr leikmaður Celtic á næstu dögum. Þessi varnartengiliður er 22 ára gamall og hefur skoska meistaraliðið fylgst með honum undanfarna mánuði.
Kwon er varnarsinnaður að upplagi en getur einnig spilað framar á vellinum og úti á vinstri kanti. Celtic mun borga tæpa milljón punda fyrir og mun leikmaðurinn skrifa undir langtímasamning.
Celtic er þessa stundina í æfingaferð um Japan og er búist við að Kwon verði kynntur á næstu dögum.
Það eru þó ekki einungis asískir leikmenn að ganga til liðs við Celtic í sumar, þar sem félagið er einnig búið að krækja sér í ástralskan kantmann og norskan miðjumann.
Marco Tilio er 21 árs gamall og á 7 A-landsleiki að baki fyrir Ástralíu. Hann er hægri kantmaður að upplagi og gerir fimm ára samning við Celtic, sem borgar um 1,5 milljón punda fyrir.
Að lokum er Odin Thiago Holm kominn til félagsins frá Vålerenga. Holm eru dýrustu innkaup Celtic það sem af er sumars, en hann kostaði tæpar 3 milljónir punda. Miðjumaðurinn var skírður Odin Holm en hann tekur sér Thiago Alcantara til fyrirmyndar innan vallar og fékk nafnabreytingu í gegn til að bæta við Thiago sem millinafni.
Holm er 20 ára gamall og hefur verið að spila fyrir aðallið Vålerenga undanfarin þrjú ár, auk þess að vera mikilvægur hlekkur í yngri landsliðum Noregs.
Celtic hefur verið orðað við Kieran Tierney, vinstri bakvörð Arsenal, en Brendan Rodgers knattspyrnustjóri viðurkennir að félagið hefur líklegast ekki efni á að kaupa hann.


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images





