Fotbolti.net
19.07.26 - 16:35
Snæbjört Pálsdóttir

Anton Ingi eftir þriðja sigurinn í röð: „Hún er náttúrulega bara markamaskína"

Auglýsing
Anton Ingi Rúnarsson var ánægður með markamaskínuna Öldu Ólafsdóttur, sem skoraði bæði mörk Fram í Víkinni.

Anton Ingi Rúnarsson var ánægður með markamaskínuna Öldu Ólafsdóttur, sem skoraði bæði mörk Fram í Víkinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

Fram heldur áfram frábæru gengi sínu eftir hlé en liðið vann 2-1 útisigur gegn Víkingi í Bestu deild kvenna í dag. Fram hefur þar með unnið þrjá leiki í röð og náð í níu stig af níu mögulegum. Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram, var að vonum ánægður í leikslok.

„Tilfinningarnar eru bara góðar, alveg eins og eftir síðustu tvo leiki. Það er virkilega gott að vinna og alltaf gott að fá þrjú stig,“ sagði Anton Ingi í samtali við Fótbolta.net.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 - 2 Fram

„Við töluðum síðast um að taka bara eina stoppistöð í einu og við erum búin að ná í níu stig úr síðustu þremur stoppistöðum. Það er virkilega gott.“

Fram hefur snúið við blaðinu eftir hlé og sjálfstraustið innan liðsins virðist aukast með hverjum leik. Aðspurður hvað hefði breyst nefndi Anton fyrst og fremst gleðina.

„Við erum aðallega að njóta þess að spila, hafa gaman og fara út á völl til þess að njóta þess að spila fótbolta. Það er það sem við erum að gera og sigurleikirnir hafa komið með því. Nú þurfum við bara að halda stemningunni og sjálfstraustinu gangandi.“

„Mér fannst við vera grimmari í fyrsta og öðrum bolta. Víkingur spilaði betur og við höfum kannski spilað betri fótbolta í undanförnum leikjum. Við nýttum okkur hins vegar veikleikann í því að setja boltann fyrir aftan vörnina.“


Anton fór fögrum orðum um Öldu, sem reyndist hetja Fram í Víkinni.

„Hún er náttúrulega bara markamaskína. Hún skorar úr níu af hverjum tíu færum og það var engin spurning hvort mörkin myndu koma. Það var eiginlega bara spurning hvenær þau myndu detta.“


Félagaskiptaglugginn er opinn en Anton telur ekki brýna þörf á því að Fram bæti við leikmönnum eins og staðan er núna.

„Það er ekkert orðið fast. Við erum að fá Katrínu Erlu Clausen til baka og hún hefur verið í hópnum í síðustu tveimur leikjum, þannig að það má alveg segja að við séum að fá nýjan leikmann þar.“

„Hlín er einnig komin og kom inn á síðustu tíu mínúturnar og var nokkuð spræk. Hópurinn er fínn, það gengur vel og kannski lítil þörf á því að fara að breyta einhverju.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.