Fotbolti.net
19.07.26 - 17:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deildin: KR rúllaði yfir Stjörnuna

Besta deildin: KR rúllaði yfir Stjörnuna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR 5 - 0 Stjarnan
1-0 Arnór Ingvi Traustason ('25 )
2-0 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('29 )
3-0 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('51 )
4-0 Aron Sigurðarson ('54 )
5-0 Aron Sigurðarson ('61 , víti)
Lestu um leikinn
KR vann stórsigur á Stjörnunni í dag og minnkaði forskot Víkings á toppnum niður í fimm stig en KR hefur spilað einum leik meira.

Aron Sigurðarson kom boltanum í netið eftir stundafjórðung en var dæmdur rangstæður. Eiður Gauti Sæbjörnsson komst síðan í gott færi en fór illa með það og skaut framhjá.

KR náði forystunni stuttu síðar þegar Arnór Ingvi Traustason skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Galdri Guðmundssyni.

Eiður Gauti bætti öðru markinu við stuttu síðar þegar hann fylgdi á eftir skoti frá Luke Rae sem Árni Snær Ólafsson varði út í teiginn. Eiður Gauti bætti öðru marki sínu við og þriðja marki KR snemma í seinni hálfleik og Aron Sig bætti fjórða markinu við stuttu síðar.

Aron innsiglaði síðan sigur KR með sínu 16. marki í sumar og hann nálgast markametið.

KR er í 2. sæti með 35 stig en Stjarnan er í 8. sæti með 15 stig.
Besta deildin: KR rúllaði yfir Stjörnuna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.15+3840
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik14+825
5Valur16-619
6ÍBV15-716
7Keflavík14-716
8Stjarnan15-815
9ÍA14-915
10KA15-814
11FH14-1111
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.