Fotbolti.net
11.08.26 - 06:00
Auglýsingar

Þróttur leitar að nýjum yfirþjálfara

Þróttur leitar að nýjum yfirþjálfara
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Knattspyrnudeild Þróttar leitar nú að nýjum yfirþjálfara eftir að Þórður Einarsson lét af störfum á dögunum.



Yfirþjálfari ber ábyrgð á faglegri uppbyggingu barna-, unglinga- og afreksstarfs félagsins, samræmingu þjálfunar og þróun leikmanna og þjálfara. Um er að ræða lykilhlutverk í að móta jákvætt, öruggt og metnaðarfullt knattspyrnuumhverfi þar sem iðkendur fá tækifæri til að þroskast bæði sem leikmenn og einstaklingar.

Starfið byggir á heildstæðri þjálfunar- og leikmannastefnu Þróttar frá yngstu flokkum til meistaraflokka, með áherslu á faglegt og metnaðarfullt starf.

Yfirþjálfari skal stuðla að öruggu og jákvæðu íþróttaumhverfi og eiga góð samskipti við iðkendur, þjálfara, forráðamenn, stjórnendur og aðra hagaðila félagsins.

Smelltu hér fyrir frekari upplýsingar um starfið
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.