
Byrjunarlið KR og Stjörnunnar: Nýir leikmenn mæta til leiks hjá báðum liðum


Mynd: Stjarnan


Mynd: Stjarnan
KR tekur á móti Stjörnunni á Meistaravöllum í 15. umferð Bestu deildar karla í dag. Bæði hafa verið að sækja nýja leikmenn en búið er að opna félagsskiptagluggann og ljóst að menn muni þreyta frumraun sína fyrir sín nýju lið í dag. Byrjunarliðin eru komin inn og má sjá þau hér að meðan.
Óskar Hrafn gerir eina breytingu frá 5-2 sigrinum á ÍBV í síðustu umferð. Ástbjörn Þórðarson fer út úr liðinu en inn í hans stað kemur Gabríel Hrannar sem tók út bann eftir að hafa hlotið rautt spjald gegn Þór Akureyri. Jason Daði Svanþórsson er í leikmannahópi KR í fyrsta sinn en hann byrjar leikinn á bekknum.
Jón Þór gerir sex breytingar á sínu liði frá 2-2 jafnteflinu gegn FH í síðustu umferð. Þeir sem koma inn í byrjunarliðið í dag eru þeir Daníel Finns, Bjarki Hauksson, Sigurður Gunnar, Alex Þór, Árni Vill og Andri Rúnar. Ari Leifsson er á bekknum en hann og Árni Vill fengu leikheimild á dögunum og spila því sinn fyrsta leik fyrir Stjörnuna í dag.
Stjarnan komst auðvitað áfram í undankeppni Sambandsdeildarinnar og má því búast við að Jón Þór sé aðeins að hvíla menn fyrir komandi leiki þar. Birnir Snær og Emila Atlason eru á meðal þeirra sem eru á bekknum í dag en þeir eru lykilmenn í liði Stjörnunnar.
Byrjunarlið KR
Halldór Snær Georgsson, Finnur Tómas Pálmason, Eiður Gauti Sæbjörnsson, Aron Sigurðarson (fyrirliði), Luke Morgan Conrad Rae, Gabríel Hrannar Eyjólfsson, Arnór Ingvi Traustason, Hrafn Tómasson, Hjalti Sigurðsson, Galdur Guðmundsson, Orri Hrafn Kjartansson
Byrjunarlið Stjarnan
Árni Snær Ólafsson, Gustav Kjeldsen, Örvar Eggertsson, Jóhann Árni Gunnarsson, Daníel Finns Matthíasson, Bjarki Hauksson, Sigurður Gunnar Jónsson, Alex Þór Hauksson (fyrirliði), Örvar Logi Örvarsson, Árni Vilhjálmsson, Andri Rúnar Bjarnason
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 15 | +38 | 40 |
| 2 | KR | 16 | +22 | 35 |
| 3 | Fram | 15 | +13 | 33 |
| 4 | Breiðablik | 14 | +8 | 25 |
| 5 | Valur | 16 | -6 | 19 |
| 6 | Keflavík | 14 | -7 | 16 |
| 7 | ÍBV | 14 | -7 | 15 |
| 8 | Stjarnan | 15 | -8 | 15 |
| 9 | ÍA | 14 | -9 | 15 |
| 10 | KA | 14 | -8 | 13 |
| 11 | FH | 14 | -11 | 11 |
| 12 | Þór | 15 | -25 | 11 |


